Lyrics

Hjörðin berst fyrir lífi sínu Sem svanir móti stormi. Þau standa í þeirri trú Að þau hafi eitthvað val, Hahahaha... Hann er vel varinn Handan hvítra múrveggja. Haldið þið virkilega að sá með völdin: Drottinn yðar Gefi ykkur val? Hans ríki þrífst á stríði Og þegnar hans þjóna því blíðir. Hvers vegna að hafna hans veldi Þegar þrældómur vor er hulinn Með draumum í vöku? Nú ákalla þau dýrið dátt Og æða áfram dreymin. Til lofts þau lyfta veigum hátt Og dansa glatt í algleymi. Hans ríki þrífst á óreiðu Og þegnar hans upphefja það glaðir. Hvers vegna að efast hans verk Þegar hvert högg svipunnar Er sem blíð gola á kinn?
Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out