Lyrics

Ég bý í sveit, á sauðfé á beit Og sællegar kýr úti á túni. Sumarsól heit, senn vermir nú reit En samt má ég bíða eftir frúnni. Traktorinn minn, reiðhesturinn, Hundur og dálítið af hænum. Kraftaverk eitt til oss gæti leitt Hýrlega mey burt úr bænum. Veturinn er erfiður mér, Svo andskoti fótkaldur stundum. Ég sæi þig gera eins og mig. Ylja á þér tærnar á hundum. Þeir segja mér að þeysa af stað, þær bíði eftir bóndanum vænum. Ég hef reynt, það veit guð, en það er sko puð Að þræða öll húsin í bænum. Já ég bý í sveit...
Writer(s): Magnus Eiriksson Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out