Music Video

Featured In

Credits

PERFORMING ARTISTS
Skálmöld
Skálmöld
Performer
COMPOSITION & LYRICS
Jón Geir Jóhannsson
Jón Geir Jóhannsson
Songwriter
Baldur Ragnarsson
Baldur Ragnarsson
Songwriter
Björgvin Sigurðsson
Björgvin Sigurðsson
Songwriter
Gunnar Ben
Gunnar Ben
Songwriter
Snæbjörn Ragnarsson
Snæbjörn Ragnarsson
Songwriter
Þráinn Árni Baldvinsson
Þráinn Árni Baldvinsson
Songwriter

Lyrics

Fugl er stærstur Fróni á, Fjallstindanna milli ná Vængjafjaðrir. Vindinn aðrir Vinir honum kljúfa hjá. Kornung þegar komu fyrst Kynjaskrímsli, svöng og þyrst. Fjalls- af þaki Flaug á baki Fuglinum sem ríkir nyrst. Blésu hana bitrum móð, Barði frá sér Íslands fljóð. Þegnar sváfu. Þessa gáfu Þórunn fann er leit hún blóð. Fyrsta stríð af fjórum vannst, Fréttist víða, sagan spannst. Þó í ljóðum þessum góðum Þórunn hvergi fyrirfannst. Með fuglum. Með fuglum. Þórunn hvergi fyrirfannst. Með fuglum. Með fuglum. Þín var ævin þrettán ár þegar fórst með fuglum, Fálkum, örnum, uglum. Þá var himinn þungur, grár, þegar fórst með fuglum. Þórunn var orðin þrettán ára, þegar hún fór með fuglum. Barðist við djöfla og fjanda, fjára, þegar hún fór með fuglum. Skammt milli gleði- og tregatára, þegar hún fór með fuglum. Lærði að svo myndi lífið klára, þegar hún fór með fuglum. Með fuglum. Með fuglum. Þegar hún fór með fuglum. Með fuglum. Með fuglum. Þegar sváfu flestir fast Fuglar vörðu björgin. Sökkva lík er sameinast Sverðin fyrir Fjörgyn. Nötraði allt Norðurland, Níð skal vondum banna. Treysti verðmætt vinaband Vættur meðal manna.
Writer(s): Thrainn Arni Baldvinsson, Gunnar Benediktsson, Baldur Ragnarsson, Snaebjoern Ragnarsson, Bjoergvin Sigurdsson, Jon Geir Johannsson Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out