Lyrics

Er völlur grær og vetur flýr Og vermir sólin grund. Kem ég heim og hitti þig, Verð hjá þér alla stund. Við byggjum saman bæ í sveit Sem brosir móti sól. Ljúfu lífi landið Vítt Mun ljá og veita skjól. Sól slær silfri á voga, Sjáið jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim, því ég er kominn heim. Að ferðalokum finn ég þig Sem mér fagnar höndum tveim. Ég er kominn heim, Já, ég er kominn heim. Sól slær silfri á voga, Sjáið jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim, því ég er kominn heim. Að ferðalokum finn ég þig Sem mér fagnar höndum tveim. Ég er kominn heim, Já, ég er kominn heim. ég er kominn heim. Já, ég er kominn heim.
Writer(s): Benjamin Paul Stefanski, Thelma Marin Jonsdottir Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out