Music Video

Engin miskunn
Watch {trackName} music video by {artistName}

Featured In

Credits

PERFORMING ARTISTS
Misþyrming
Misþyrming
Performer
COMPOSITION & LYRICS
Dagur Gíslason
Dagur Gíslason
Composer

Lyrics

Nú vofir yfir mesti hryllingur Líkt og svört stormský við sjónarrönd óhugnanlega svífandi nær og nær á miskunnarlausum himninum. Hlaupið bara eins og fætur toga! Það er vonlaust að reyna að flýja, það er orðið um seinan... Við kynnum nú nýja hugmynd Um hrylling og taumlausan ótta Svo íþyngjandi og óumflýjanlega Sem mara á hrærðu hjarta. Þið hafið enga hugmynd um þá skelfingu Sem Helvíti raunverulega er! Með eld í hjarta og heift í huga Vér mótmælum og eitrum og skaða mestan veitum. Hersing vor knáa fjölskrúðug og framsækin Ryður þessa braut og rústir eftir skilur. Engin fórn er of mikil í okkar blóðskotnu augum því okkar er valdið Og ykkar er fallið. Valdi okkar beitum án þess að blikka auga. Vor fjölda-aftaka mikla Skal gjörast fyrir allra manna augum. Hreytum og hrækjum! Og svívirðum falska kónga! Brennum og brjótum öll stórveldi í okkar vegi! Við höfnum og verjumst! Og berjumst af offorsi! Herjum á hetjur Og allt sem þær standa fyrir! Hreytum og hrækjum! Og svívirðum slæga aumingja! Brennum og brjótum öll stórveldi í okkar vegi! Við höfnum og verjumst! Og berjumst með ofbeldi! Herjum á væsklana Og allt sem þeir standa fyrir! Steytum krepptum hnefum, sperrtir og hertir Kjálkar læstir, tilbúnir í stríð. Við herjumst af æði Og öskrum svo hástöfum Að raddir bresta Og skerast í fjarska. Slítum hálsa óvinanna Og hæðumst að þeim til sólarrásar. Engin miskunn, aldrei aftur Fyrir þá sem hyggjast svíkja og kúga.
Writer(s): Dagur Gislason Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out